Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
   mán 12. desember 2016 21:03
Jóhann Ingi Hafþórsson
Víðir Sig: Sumarið í Frakklandi sem menn gleyma aldrei
Víðir Sigurðsson
Víðir Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu hefur séð um það í 35 ár að skrifa bækurnar um íslenska knattspyrnu.

Hann hefur nú gefið út Íslensk knattspyrna 2016 en hann hefur skrifað bækurnar árlega síðan árið 1981. Árið í ár var að sjálfsögðu gríðarlega stórt fyrir íslenska knattspyrnu þar sem landsliðið komst alla leið í 8-liða úrslit á EM í Frakklandi.

Víðir segist ekki vera kominn með leið á því að skrifa bækur á hverju ári.

„Þetta er sú 35. sem ég kem að en þetta er bók númer 36 í röðinni. Þetta er búið að vera í gangi síðan 1981. Þetta er skemmtilegt verkefni fyrir þann sem hefur áhuga á fótbolta. Þetta hefur alltaf verið skemmtilegt verk að vinna og það er alltaf jafn gaman þegar það er tilbúið."

Víðir gaf út auka bók í ár en sú ber nafnið HÚH! Bókin er um Evrópumótið en þar var hann sem fréttamaður og skrifaði hann um upplifun sína þar.

„Þetta er óvenjuleg bók að því leyti að ég hef aldrei fengist við það áður að skrifa beint frá eigin brjósti. Ég var úti í Frakklandi í sumar þar sem ég skrifaði dagbók upp á hvern dag og skrifaði einn kafla í lok hvers dags um það sem hafði gerst."

„Þetta er magnaðasti íþróttaviðburður sem ég hef upplifað og unnið í kringum og það eru allir á einu máli, hvort sem þeir voru þarna sem áhorfendur, fréttamenn eða hvað, þetta er sumarið í Frakklandi sem menn gleyma aldrei," sagði Víðir.

Viðtalið við Víði má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner