Fær ekki að fara fyrr en Salah snýr aftur - Vill fara frá Tottenham - Juventus orðað við marga - Guehi til Þýskalands?
   þri 13. janúar 2026 11:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Telur líklegt að sá næstmarkahæsti verði seldur út
Sigurður Bjartur.
Sigurður Bjartur.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Adolf Daði er leikmaður Stjörnunnar.
Adolf Daði er leikmaður Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Sigurður Bjartur Hallsson, leikmaður FH, skoraði sextán mörk í Bestu deildinni á síðasta tímabili og erlend félög eru með augastað á honum. Einungis Patrick Pedersen skoraði fleiri mörk en Sigurður Bjartur næsta sumar.

Fótbolti.net fjallaði um það í síðustu viku að félag í ensku C-deildinni hefði fengið samþykkt tilboð í hann en Sigurður Bjartur (1999) fékk ekki atvinnuleyfi á Englandi.

Skosk félög og félög á Norðurlöndunum hafa áhuga á Sigurði Bjarti og líkur á þvi að hann verði seldur erlendis í vetur. Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, í dag.

Heldur þú að það séu meiri líkur en minni á því að hann fari erlendis í vetur?

„Já, að einhverju leyti finnst mér það. Hann spilaði vel síðasta sumar og það er áhugi á honum, en ekkert konkret á þessum tímpunkti. Mér finnst líklegt að eitthvað gerist á næstu vikum eða mánuðum."

„Það er rétt sem kom fram í síðustu viku, það var tilboð í hann frá Englandi en út af Brexit fór það ekki í gegn,"
segir Davíð.

Finnst honum skrítið að félagið hafi reynt að fá Sigurð Bjart þegar óvissa væri um hvort hann fengi atvinuleyfi?

„Þeir voru mjög bjartsýnir á að hann fengi atvinnuleyfi. Mín upplifun er að félögin upplifi á mismunandi hátt hvað þurfi til að fá leyfið. Það fór ekki í gegn í þetta skiptið," segir Davíð.

Hann var spurður út í Adolf Daða Birgisson (2004), leikmann Stjörnunnar, sem hefur verið orðaður við FH.

„Það er rétt að við höfum áhuga á honum, en ég held það sé ekki rétt að tjá sig frekar um það á þessum tímapunkti," segir Davíð.
Athugasemdir
banner
banner