Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 13:19
Elvar Geir Magnússon
Guardiola segir lið sitt úrvinda: Haaland er ekki 100%
Óvíst er hvort Haaland verði með á morgun.
Óvíst er hvort Haaland verði með á morgun.
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn John Stones.
Varnarmaðurinn John Stones.
Mynd: EPA
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Manchester City á bikarleik gegn D-deildarliðinu Salford City um helgina. Óvíst er hvort norski markahrókurinn Erling Haaland verði í hóp hjá City.

Haaland fann fyrir óþægindum í 3-0 sigri gegn Fulham í vikunni og var tekinn af velli í hálfleik. Það hefur verið gríðarlegt leikjaálag á honum.

„Erling er ekki 100%. Sjáum hvernig honum líður í dag. Læknirinn sagði mér að þetta væri ekkert stórt vandamál en hann fann fyrir óþægindum í leiknum og spilaði þess vegna ekki seinni hálfleik. Við skoðum í dag hvort hann verði með gegn Salford," segir Pep Guardiola, stjóri City. Leikurinn verður klukkan 15 á morgun.

Stones skoðaður á morgun
Varnarmaðurinn John Stones mætti til baka úr meiðslum og var í hóp gegn Fulham.

„Hann hefur verið í erfiðleikum með meiðsli, bæði á þessu tímabili og því síðasta. Síðasti leikur sem hann spilaði var útileikurinn gegn Leeds. Hann er búinn að taka tvær eða þrjár æfingar og við skoðum á morgun hvort hann spili og þá hve mikið," segir Guardiola.

Hefur ekki rætt við Bernardo Silva
Guardiola segist ekki hafa rætt við Bernardo Silva um hvort hann verði áfram hjá félaginu eftir að núgildandi samningur hans rennur út í sumar.

Hann segist ekki hafa hugmynd um hvað gerist en sagði við Silva að láta sig vita þegar hann væri búinn að taka ákvörðun.

Ekki hægt að ganga að neinu vísu
City vann 8-0 sigur gegn Salford í bikarnum á síðasta tímabili.

„Þeir eru í D-deildinni og við erum á heimavelli en ég reyni að setja inn í huga leikmanna að ekki er hægt að ganga að neinu vísu og allt er erfitt. Við þurfum að vinna okkar vinnu og morgundagurinn er ekki untantekning," segir Guardiola.

City náði í vikunni að minnka forystu Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig.

„Liðið er líkamlega og andlega úrvinda eftir allt þetta leikjaálag í marga mánuði. Eftir leikinn á morgun getum við fengið smá frí."
Athugasemdir
banner
banner