Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fös 13. júní 2025 14:30
Elvar Geir Magnússon
Liverpool að fá leikmann með „einstaka hæfileika“
Wirtz er á leið til Liverpool.
Wirtz er á leið til Liverpool.
Mynd: EPA
Fótboltasérfræðingurinn Edu Rubio býst við að Florian Wirtz muni slá í gegn hjá Liverpool. Rubio hefur verið í þjálfarateymi West Ham og starfað hjá fleiri enskum félögum.

„Wirtz er með einstaka hæfileika í að brjóta upp línurnar og finna lykilsendingarnar. Hann er meistari í að finna svæðin og mun koma með mörk til liðsins," segir Rubio.

Englandsmeistarar Liverpool hafa gert 116 milljóna punda samkomulag við þýska félagið Bayer Leverkusen um kaup á sóknarmiðjumanninum Wirtz, sem er 22 ára.

„Hann er leikmaður með framúrskarandi vinnusemi. Liverpool er að fá inn samviskusaman og hæfileikaríkan leikmann í hópinn. Vinnusemi hans án bolta er mjög góð en hann þarf að aðlagast hraðari og líkamlegri leik í ensku úrvalsdeildinni."

„Wirtz er tía, leikstjórnandi á miðsvæðinu, eða fölsk nía. Hann er mjög fjölhæfur og það mun nýtast Liverpool. Hann er með mörg vopn í vopnabúrinu."

Wirtz lék sinn fyrsta leik fyrir Leverkusen 17 ára gamall og hefur skorað 57 mörk í 197 leikjum. Hann hjálpaði liðinu að vinna Bundesliguna í fyrsta sinn í sögu félagsins á síðasta ári. Hann hefur skorað sjö mörk í 31 landsleik fyrir Þýskaland.
Athugasemdir