Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 13:30
Brynjar Ingi Erluson
„Skynsamara að fá Zirkzee frekar en Gyökeres“
Joshua Zirkzee
Joshua Zirkzee
Mynd: EPA
Capello vill að Juventus kaupi Zirkzee frekar en Gyökeres
Capello vill að Juventus kaupi Zirkzee frekar en Gyökeres
Mynd: EPA
Fyrrum þjálfarinn Fabio Capello hvetur Juventus til þess að sækja Joshua Zirkzee, framherja Manchester United, í sumarglugganum.

Zirkzee spilaði frábærlega með Bologna á Ítalíu áður en Man Utd fékk hann á síðasta ári.

Hollendingurinn var lengi í gang, en náði hægt og rólega að bæta leik sinn þegar leið á tímabilið.

Talið er að Zirkzee fái annað tækifæri undir Ruben Amorim á næsta tímabili, en Capello, sem þjálfaði enska landsliðið, Real Madrid, Juventus, Roma og fleiri lið, segir að það væri skynsamt hjá Juventus að sækja hann aftur í deildina.

„Ég ætla fara beint í að ræða Joshua Zirkzee, sem hefur sýnt brot af alvöru klassa í Seríu A. Hann hefur verið í vandræðum hjá Manchester United og ég held að það sé þegar kominn tími á að fá Hollendinginn aftur til Ítalíu.“

„Hann myndi kosta minna en einhver eins og Viktor Gyökeres, sem hefur verið orðaður við Juventus og þó að Svíinn hafi verið að raða inn mörkum hjá Sporting þá hefur hann aldrei spilað í topp deild eins og við höfum hér. Það væri því skynsamara að fá leikmann sem hefur sannað sig á þessu sviði, eins og þennan fyrrum framherja Bologna,“
sagði Capello í dálk sínum í Gazzetta dello Sport.

Gyökeres er heitasti sóknarmaðurinn á markaðnum í sumar, en hann hefur verið orðaður við öll helstu stórliðin og þar á meðal Juventus, en Manchester United leiðir kapphlaupið. Flest félög töldu sig geta fengið hann á 70 milljónir evra, en samkvæmt fréttum síðustu daga er útlit fyrir að þau þurfti að greiða riftunarákvæði hans sem nemur um 100 milljónum evra.
Athugasemdir
banner
banner