"Ég er augljóslega gríðarlega svekktur eins og alltaf eftir tapleik. Það er eitt lið á vellinum fyrstu 30 mínúturnar og þeir skora uppúr hornspyrnu og svo drepa þeir leikinn þegar þeir skora úr öðru föstu leikatriði í seinni hálfleik. Mér finnst við skapa helling í fyrri hálfleik en ekki eins mikið í seinni hálfleik."
Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 2 ÍR
Sagði Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Aftureldingar eftir 0-2 tap á heimavelli fyrir toppliði ÍR í 2. deildinni fyrr í kvöld.
"Það vantar grimmd í boxið þegar við erum að gefa fyrir og þessa síðustu sendingu og að skotið sé á helvítis rammann. Við fáum fullt af góðum sénsum í fyrri hálfleik en markmaðurinn þarf bara að verja einu sinni tvisvar. Vantar yfirvegun og að við séum að klára færin."
Þetta var þriðji tapleikur Aftureldingar í röð en Úlfur er hvergi banginn:
"Það sem við getum tekið jákvætt úr þessari taphrinu er að við vorum lélegir á móti Vestra, vorum ágætir á móti Hetti og svo bættum við við í dag. Svona er boltinn. Við vorum 5 stigum á undan ÍR fyrir 7 umferðum síðan og þeir hafa snúið þessu við. Það er ekkert sem segir að við getum ekki snúið þessu við eins og þeir. Það er ekki kominn skjálfti í hópinn. Við vitum hvað við stöndum fyrir og það er bara að undirbúa okkur fyrir næsta leik."
Aðspurður útí félagaskiptagluggan svaraði Úlfur:
Það verður einhver velta á leikmönnum hjá okkur og við þurfum að skoða þau mál. Það er ekki búið að ákveða hvort við tökum menn inn eða ekki.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |





















