Real Madrid vann öruggan 4-1 sigur á Elche í spænsku deildinni í gær. Liðið er stigi á eftir Barcelona í titilbaráttunni en Barcelona á leik til góða gegn Sevilla í dag.
Það eru mikil meiðslavandræði í hópnum hjá Real Madrid en fimm ungir og óreyndir leikmenn komu við sögu í leiknum.
„Ég get dáið í friði eftir að hafa séð alla uppöldu strákana á vellinum," sagði Alvaro Arbeloa.

Arda Guler skoraði stórkostlegt mark en hann skoraði með skoti vel fyrir aftan miðju.
„Ég er orðlaus. Við þurfum að fá ramma og gera þetta mark að listaverki. Þetta er eitthvað fordæmalaust og stórkostlegt. Ég sá alla setja hendurnar á höfuðið. Það er ótrúlegt, að skora þetta mark úr 70 metra færi," sagði Arbeloa.
Athugasemdir