Tyrkneska undrið Arda Güler skoraði eitt flottasta mark tímabilsins í La Liga á Spáni í 4-1 sigri Real Madrid á Elche í gær.
Güler er talinn einn allra efnilegasti fótboltamaður heims og sýnt skemmtilega takta á þessu tímabili.
Hann skoraði eitt af mörkum tímabilsins í sigrinum á Elche í gær er hann fékk boltann fyrir aftan miðju og þrumaði honum yfir markvörð gestanna og í netið.
Þetta var fjórða deildarmark Güler á tímabilinu og hefur hann alls komið að tólf mörkum til þessa.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Athugasemdir

