Úkraínski landsliðsmaðurinn Oleksandr Zinchenko, fyrrum leikmaður Arsenal, meiddist illa á hné eftir aðeins þriggja mínútna leik í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með Ajax í Hollandi.
Zinchenko gekk í raðir Ajax frá Arsenal í lok janúargluggans eftir að hafa verið hjá Nottingham Forest á láni.
Zinchenko gekk í raðir Ajax frá Arsenal í lok janúargluggans eftir að hafa verið hjá Nottingham Forest á láni.
Þessi 29 ára leikmaður lá kvalinn á vellinum eftir slæm meiðsli sem hann hlaut eftir baráttu við Dimitrios Limnios sem virtist ansi sakleysisleg.
Óttast er að tímabilinu sé lokið hjá Zinchenko og þátttaka hans með Úkraínu á HM í sumar því í verulegri hættu.
After just a few minutes into his first start for Ajax, Oleksandr Zinchenko was forced off the pitch with what seems to be a serious injury.
— EuroFoot (@eurofootcom) February 15, 2026
"I'm definitely worried about him.", said Ajax coach Fred Grim. ???????? pic.twitter.com/VOLRI4YoUo
Athugasemdir


