,,Ég er í skýjunum. Að skora á lokamínútunni er besta leiðin til að vinna bikarkeppnina. Þetta er ótrúlegt," sagði Gary Martin við Fótbolta.net eftir 2-1 sigur á Keflavík í kvöld.
Gary lagði upp bæði mörk KR en í fyrra markinu átti hann skalla sem Grétar Sigfinnur Sigurðarson kom yfir línuna af stuttu færi.
,,Hann var á leiðinni inn. Ég sagði við hann í hálfleik að hann hefði átt að láta hann fara en ég var að grínast. Það skiptir ekki máli hver skora, það eina sem skiptir máli er að vinna."

Gary segir að KR-ingar muni fagna sigrinum vel og innilega í kvöld.
,,Ég ætla að drekka 15 bjóra. Ég vakna vonandi á mánudaginn bara, það er planið," sagði Gary léttur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.