Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
   mið 16. ágúst 2023 21:02
Hákon Dagur Guðjónsson
Davíð Smári: Ekki hægt að vinna fótboltaleik þegar dómgæslan er svona
Lengjudeildin
Davíð Smári Lamude.
Davíð Smári Lamude.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Ég hefði aldrei tekið stigið fyrirfram, við ætluðum að vinna þennan leik," sagði Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra eftir 2 - 2 jafntefli við Aftureldingu í Lengjudeild karla í kvöld.


Lestu um leikinn: Vestri 2 -  2 Afturelding

Vestri var 2 - 0 yfir í hálfleik gegn toppliðinu og spiluðu frábærlega en virtist sem allt annað lið kæmi út í seinni hálfleikinn. Hvað gerðist?

„Það var þreyta og við féllum aðeins til baka, en það voru alls ekki skilaboðin. Við ætluðum að klára leikinn. Það er stutt síðan við spiluðum og menn falla sjálfkrafa aðeins neðar á völlinn. Þeir ógnuðu markin okkar ekki neitt í fyrri hálfleik og menn héldu mögulega að þetta yrði of auðvelt í seinni hálfleik, ég veit það ekki. Þeir komast utan á okkur margoft trekk í trekk og ná að koma honum inn í boxið. Þeir fylla boxið vel," sagði hann og sneri sér svo næst að dómaranum, Guðmundi Páli Friðbertssyni.

„Stóra málið í þessu er að það er ekki hægt að vinna fótboltaleik þegar dómgæslan er svona, hún hallar svona á eitt lið. Það er ofboðslega erfitt að vinna fótboltaleik þannig og ég held að það hafi flestir séð að maðurinn á flautunni átti því miður afleitan dag. Mann langar ekki að vera að væla yfir þessu en þetta er svo ofboðslega svekkjandi þegar liðið er búið að leggja svonan mikið inn, erfiður leikur og þetta sé svona. Bæði lið eru hundfúl. Leikmaðurinn hjá þeim átti klárlega að fá rautt spjald. Ég man ekki eftir að hafa séð annað eins brot þar sem hann fær gult spjald. Sólinn er í hné hæð og heppnir að hann var ekki fótbrotinn í dag. Línuvörðurinn er 15 metrum frá þessu, dómarinn er 8 metrum frá þessu. Bein í gult spjald, ég bara skil þetta ekki."

Nánar er rætt við Davíð Smára í spilaranum að ofan.


Slapp
Athugasemdir
banner