Ármann Smári Björnsson, fyrirliði Skagamanna, var að vonum ánægður eftir 2-1 sigur á Val í kvöld.
„Þetta spilaðist svolítið eins og síðustu leikir sem við höfum unnið. Við höfum bakkað aðeins og nýtt okkar færi," sagði Ármann áður en hann skaut létt á fyrrum liðsfélaga sinn, Andra Adolphsson, sem skoraði mark Valsmanna.
„Þetta var aldrei skot hjá Andra. Þetta var fyrirgjöf allan tímann en góð fyrirgjöf hjá honum,"
„Við sjáum hvað gerist í næsta leik. Það eru einhverjir sem segjast ætla að vera með en við sjáum bara hvað þeir gera," sagði Ármann Smári um hárgreiðslu Skagamanna.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.





















