„Bara ég er eiginlega bara mjög stolt af stelpunum mér fannst við eiga mjög flotta kafla inn á milli í leiknum og þarna erum að fá svoldið af mörkum á okkur úr föstum leikatriðum hornum, fyrirgjöfum sem við þurfum að vinna aðeins betur í en margir flottir kaflar í leiknum." Sagði Kristrún Lilja Daðadóttir eftir 7-1 tap gegn Fylki í kvöld.
Lestu um leikinn: Fylkir 7 - 1 Augnablik
„Það er búið að kroppa svoldið í liðið okkar og þá koma bara nýjar og ungar stelpur inn í hópinn en auðvitað tekur tíma fyrir þessar stelpur að koma inn í alvöru bolta, meistaraflokks bolta og þessi deild er bara mjög flott og það er bara mikil gæði í þessari deild þannig það tekur tíma fyrir þessar stelpur að læra inn á þetta, við erum undir í styrk en við erum betri í fótbolta þannig að framtíðin er okkar".
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.























