Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 20:47
Ívan Guðjón Baldursson
Kane sextán mörkum frá því að bæta metið
Mynd: EPA
Framherjinn öflugi Harry Kane er búinn að skora 26 mörk í 22 deildarleikjum það sem af er tímabils í Þýskalandi og ógnar hann markameti Robert Lewandowski.

Lewandowski skoraði 41 mark á deildartímabilinu 2020-21 og er Kane því sextán mörkum frá því að bæta markametið yfir eitt tímabil.

Það eru tólf leikir eftir af tímabilinu og því gæti Kane tekist að hirða þetta magnaða met.

Það er þó afar ólíklegt að honum takist að gera það í 29 leikjum eins og Lewandowski gerði á sínum tíma, þar sem hann missti af fimm leikjum í miðjum COVID faraldri.
Athugasemdir
banner