Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   fim 19. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stutt stopp í París?
Lucas Chevalier.
Lucas Chevalier.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Óvissa er með framtíð markvarðarins Lucas Chevalier hjá Paris Saint-Germain.

Franska íþróttablaðið L'Equipe segir að mörg félög hafi spurst fyrir um Chevalier.

Chevalier var keyptur til PSG frá Lille fyrir 40 milljónir evra síðasta sumar. Hann átti að vera arftaki Gianluigi Donnarumma en missti fljótt sæti sitt í liðinu.

Síðasti leikur hans í Meistaradeildinni var 20. janúar og síðasti leikur hans fyrir PSG var þremur dögum eftir það.

Matvey Safonov hefur staðið sig vel í markinu og Chevalier hefur þurft að sætta sig við það að vera utan liðsins.

Það er ekki útilokað að Chevalier muni yfirgefa PSG í sumar en hann hefur meðal annars verið orðaður við Tottenham sem þarf nauðsynlega á markverði að halda.
Athugasemdir
banner