Erik Lamela var að skrifa undir samning við Tottenham sem bindur hann við félagið til 2022.
Lamela er kantmaður sem kom við sögu í 29 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili.
Hann á 23 landsleiki að baki fyrir Argentínu og mun berjast við menn á borð við Christian Eriksen, Son Heung-min og Lucas Moura um byrjunarliðssæti.
Son skrifaði einnig undir nýjan samning fyrr í dag sem bindur hann við félagið til 2023.
Athugasemdir