Kane gæti tekið við af Lewandowski - Amorim fær pening - Camavinga til Englands?
   lau 20. september 2025 23:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chalobah: Erum ekki krakkar lengur
Mynd: EPA
Chelsea tapaði 2-1 gegn Man Utd í úrvalsdeildinni í dag. Trevoh Chalobah skoraði mark Chelsea í leiknum.

„Við verðum að líta inn á við. Þetta var ekki nógu gott fyrir okkur og félagið. Höfum ekki spilað jafn illa á tímabilinu eins og fyrsta korterið. Við verðum að fara yfir það og læra af þessu," sagði Chalobah.

Chelsea var í miklum vandræðum í leiknum. Robert Sanchez fékk að líta rauða spjaldið strax í upphafi leiksins og Man Utd var með 2-0 forystu í hálfleik.

„Svona gerist á hverju tímabili. Við getum ekki sagt að við séum krakkar lengur, við höfum spilað nógu lengi í úrvalsdeildinni. Við verðum að læra af þessu og halda áfram," sagði Chalobah.
Athugasemdir
banner
banner