Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 21. júlí 2019 21:51
Arnar Helgi Magnússon
Noregur: Viðar Ari kom af bekknum og lagði upp sigurmarkið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandefjord 1 - 0 Kongsvinger
1-0 Pontus Engblom ('78)

Viðar Ari Jónsson lagði upp sigumark Sandefjord gegn Kongsvinger í norsku 1.deildinni í kvöld.

Viðar byrjaði á varamannabekk Sandefjord í leiknum en kom inn á á 67. mínútu.

Rúmum tíu mínútum síðar hafði hann lagt upp sigurmarkið fyrir Svíann Pontus Engblom.

Eftir sigurinn situr Sandefjord í 2. sæti deildarinnar með 33 stig, tveimur stigum minna en toppliðið, Álasund.

Næsti leikur Sandefjord er gegn HamKam eftir viku og verður spennandi að sjá hvort að stoðsendingin skili Viðari byrjunarliðssæti í þeim leik.
Athugasemdir
banner
banner