Rodrygo orðaður við Arsenal - Wirtz velur milli Bayern og Liverpool - Barcelona vill Díaz
   fim 22. maí 2025 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Hafrún fyrsta konan til að vera kjörin formaður Vals
Mynd: Valur
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Hafrún Kristjánsdóttir hefur verið kjörin sem nýr formaður Vals og er hún fyrsta konan sem gegnir þessu starfi frá stofnun félagsins fyrir rúmlega 100 árum síðan.

Aðalfundur Vals var haldinn í gær og var Hafrún kjörin formaður. Hún er 45 ára prófessor og deildarforseti íþróttafræðideildar Háskólans í Reykjavík og hefur verið virkur þátttakandi í stjórn Vals um árabil.

Hafrún, sem er íþróttasálfræðingur, sat í aðalstjórn Vals á árunum 2008 til 2016 og tók sér aftur sæti 2023. Þá hefur hún áður verið varaformaður árin 2015-2016 og 2024.

Hafrún tekur við af Herði Gunnarssyni sem látið hefur af störfum eftir farsælt og óeigingjarnt starf. Hörður hefur verið formaður Vals síðustu tvö ár og gegnt embættinu í sjö ár alls.

„Það er mér mikill heiður að fá traustið til að leiða Val, fyrst kvenna – félag sem hefur gefið mér svo mikið síðan ég gekk inn í það tólf ára gömul," sagði Hafrún meðal annars í gær.

„Valur hefur mótað mig sem manneskju og kennt mér gildi sem ég ber með mér í daglegu lífi. Ég tek við þessu hlutverki af auðmýkt og ábyrgðartilfinningu og mun leggja mig alla fram við að leiða félagið áfram með heildarhagsmuni þess að leiðarljósi. Ég hlakka til að takast á við þær áskoranir sem bíða okkar – saman ætlum við að efla Val enn frekar og styrkja stöðu félagsins sem burðarás í íslensku íþróttalífi.“
Athugasemdir
banner