Það var óvenju mikið um rasísk skilaboð í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem fjórir úrvalsdeildarleikmenn urðu fyrir barðinu á andlega veikum netverjum.
Wesley Fofana og Hannibal Mejbri bárust ljót skilaboð eftir jafnteflisleik Chelsea og Burnley á laugardaginn og í gær bættust Tolu Arokodare og Romaine Mundle við hópinn.
22.02.2026 21:28
Arokodare fékk líka rasísk skilaboð
„Þetta hefur verið hörmuleg helgi í ensku úrvalsdeildinni þar sem fjórir leikmenn urðu fyrir barðinu á rasisma á samfélagsmiðlum," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Kick It Out samtökunum sem berjast gegn kynþáttafordómum í fótbolta.
„Það er staðreynd að svona gerist reglulega en það mikilvægasta er hvernig er brugðist við. Það verður að refsa þeim seku. Við getum ekki búist við því að leikmenn læri að lifa með svona hegðun eða hvaða önnur manneskja sem er. Þetta er óásættanlegt með öllu."
Mundle átti slakan leik er Sunderland tapaði fyrir Fulham í gær og rigndi yfir hann rasískum skilaboðum, sem hann deildi svo með fylgjendum sínum líkt og kollegar hans höfðu gert á undan.
„Það er ótrúlegt að við séum að spila á tímum þar sem fólk hefur frelsi til að ráðast að okkur með kynþáttafordómum án þess að fá refsingu fyrir," skrifaði Arokodare á Instagram.
Enska úrvalsdeildin og félagsliðin sem spiluðu umrædda leiki hafa öll gefið frá sér sterkar yfirlýsingar sem fordæma þessa hegðun og kalla eftir því að yfirvöld taki harðar á svona málum í samstarfi við samfélagsmiðlana sjálfa.
Athugasemdir



