Tveimur síðustu leikjum dagsins er lokið í efstu deild spænska boltans þar sem hinn 38 ára gamli Iago Aspas kom inn af bekknum og var maður leiksins annan leikinn í röð.
Aspas gerði herslumuninn fyrir Celta á útivelli gegn PAOK í Evrópudeildinni í vikunni með marki og stoðsendingu og kom hann inn af bekknum þegar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma gegn Mallorca í kvöld.
Celta fékk dæmda vítaspyrnu eftir brot á Borja Iglesias innan vítateigs á 85. mínútu og skoraði Aspas með öruggu skoti sem endaði í netinu þó að markvörðurinn hafi valið rétt horn.
Það var spenna í uppbótartímanum allt þar til á 95. mínútu þegar Aspas, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði sitt annað mark til að innsigla sigurinn.
Celta er í sjötta sæti spænsku deildarinnar eftir sigurinn, ellefu stigum frá meistaradeildarsæti. Mallorca situr í fallsæti.
Villarreal og Valencia áttust einnig við í nágrannaslag í suðausturhluta Spánar og náðu gestirnir forystu með marki úr vítaspyrnu á 27. mínútu eftir afar óheppilegt brot hjá markverðinum innan vítateigs. Largie Ramazani skoraði örugglega af vítapunktinum en heimamenn í liði Villarreal voru ekki lengi að jafna.
Santi Comesana skoraði af stuttu færi fjórum mínútum síðar þegar boltinn féll fyrir hann eftir mikinn atgang í vítateig Valencia í kjölfar fyrirgjafar frá vinstri kanti.
Villarreal var sterkara liðið í fyrri hálfleiknum og náði forystu í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Pape Gueye skoraði úr vítaspyrnu eftir að hendi var dæmd innan teigs.
Gestirnir frá Valencia voru sterkara liðið í síðari hálfleik en þeim tókst ekki að gera jöfnunarmark þrátt fyrir fín færi, svo lokatölur urðu 2-1 fyrir Villarreal.
Villarreal er í þriðja sæti, tíu stigum á eftir toppliði Barcelona, á meðan Valencia er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Celta 2 - 0 Mallorca
1-0 Iago Aspas ('85 , víti)
2-0 Iago Aspas ('95 )
Villarreal 2 - 1 Valencia
0-1 Largie Ramazani ('27 , víti)
1-1 Santi Comesana ('31 )
2-1 Pape Gueye ('45+6 , víti)
Athugasemdir


