Roma 3 - 0 Cremonese
1-0 Bryan Cristante ('59 )
2-0 Obite Evan Ndicka ('77 )
3-0 Niccolo Pisilli ('86 )
1-0 Bryan Cristante ('59 )
2-0 Obite Evan Ndicka ('77 )
3-0 Niccolo Pisilli ('86 )
AS Roma tók á móti nýliðum Cremonese í lokaleik dagsins í ítalska boltanum og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik, þar sem Rómverjar fengu einu færin.
Lærlingar Gian Piero Gasperini skiptu um gír eftir leikhlé og enduðu á að sigla þægilegum sigri í höfn, en fyrstu tvö mörkin þeirra komu eftir hornspyrnur.
Bryan Cristante skallaði hornspyrnu frá Lorenzo Pellegrini í netið á 59. mínútu og tæpum 20 mínútum síðar var Cristante aftur í boltanum eftir hornspyrnu. Í þetta skiptið átti hann létta snertingu á boltann til að stýra honum í átt að Evan Ndicka sem skoraði af stuttu færi til að tvöfalda forystuna.
Niccoló Pisilli kom inn af bekknum á 72. mínútu og var afar líflegur. Hann skoraði þriðja mark Rómverja á 86. mínútu og fékk færi til að bæta öðru við en tókst ekki.
Lokatölur 3-0 og er Roma búið að jafna Ítalíumeistara Napoli á stigum í þriðja sæti Serie A deildarinnar, með 50 stig eftir 26 umferðir.
Cremonese er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Athugasemdir



