Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   fös 24. október 2025 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Varð sá yngsti í gær og skrifaði undir samning í dag
Mynd: EPA
Miðjumaðurinn efnilegi Reggie Walsh er búinn að skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við Chelsea, degi eftir að hafa orðið yngsti leikmaður í meistaradeildarsögu félagsins.

Walsh kom inn af bekknum í stórsigri gegn Ajax og er næstyngsti enski leikmaður sögunnar til að spila í Meistaradeildinni, eftir Jack Wilshere sem var ekki orðinn 17 ára þegar hann fékk að spreyta sig með Arsenal árið 2008.

Walsh er nýorðinn 17 ára gamall og má því skrifa undir atvinnumannasamning.

Hann á 15 leiki að baki fyrir yngri landslið Englands og hefur í heildina komið við sögu í fjórum leikjum með aðalliði Chelsea.

   22.10.2025 22:19
Táningar Chelsea í sögubækurnar

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Slapp
Athugasemdir
banner