Arsenal hefur lýst yfir áhuga á því að fá Christian Nörgaard, fyrirliða Brentford, í sínar raðir. Samkvæmt Athletic hefur Arsenal lagt fram 9,3 milljóna punda tilboð í Nörgaard.
Nörgaard er 31 árs danskur landsliðsmaður, hann er einn af þeim sem Arsenal skoðar að fá í sínar raðir ef ekki tekst að endursemja við Thomas Partey sem verður samningslaus í lok mánaðar.
Nörgaard er 31 árs danskur landsliðsmaður, hann er einn af þeim sem Arsenal skoðar að fá í sínar raðir ef ekki tekst að endursemja við Thomas Partey sem verður samningslaus í lok mánaðar.
Partey er með samningstilboð á borðinu en ekkert hefur verið samþykkt og núgildandi samningur rennur út eftir fimm daga. Jorginho er farinn frá Arsenal sem er að klára kaup á Martin Zubimendi frá Real Sociedad.
Nörgaard er varnarsinnaður miðjumaður sem uppalinn er hjá Lyngby, fór svo til Hamburg, næst til Bröndby og var hjá Fiorentina áður en Brentford keypti hann árið 2019. Hann á að baki 35 landsleiki og hefur í þeim skorað eitt mark.
Á liðinni leiktíð skoraði hann fimm mörk í 34 deildarleikjum með Brentford.
Athugasemdir