
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu eru farnar út til Serbíu þar sem þær ljúka undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið í Sviss.
Þær spila æfingaleik við Serbíu á föstudaginn og verður Fótbolti.net á staðnum til að fjalla um leikinn og undirbúninginn fyrir hann.
Þær spila æfingaleik við Serbíu á föstudaginn og verður Fótbolti.net á staðnum til að fjalla um leikinn og undirbúninginn fyrir hann.
Stelpurnar hafa síðustu daga verið í ákveðnum erindagjörðum áður en þær héldu út, en þær heimsóttu meðal annars forsetahjónin og færðu þeim treyjur.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, birti myndir af þessum á Instagram og skrifaði: „Áfram Ísland."
Það er spurning hvort forsetahjónin láti sjá sig út í Sviss en það er vonandi að sem flestir geri sér ferð og styðji stelpurnar okkar á stóra sviðinu.
Stelpurnar hafa svo líka verið í alls konar myndatökum, leika í auglýsingum og fleira.
Núna fara þær til Serbíu þar sem þær ljúka undirbúningnum fyrir mótið og fara þær svo til Sviss þann 28. júlí. Fyrsti leikur á EM er svo gegn Finnlandi þann 2. júlí.
Stelpurnar birta margar hverjar myndir af sér á samfélagsmiðlum í dag þar sem þær eru á leið upp í flugvél. Núna hefst alvaran og munum við fjalla vel um stelpurnar okkar næstu vikur.
Hér fyrir neðan má sjá færsluna frá Höllu forseta á Instagram.
Athugasemdir