Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Barcelona að fá sænska ungstirnið á tombóluverði
Í meistaradeildinni haustið 2023.
Í meistaradeildinni haustið 2023.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Barcelona er nálægt því að ganga frá kaupum á sænska ungstirninu Roony Bardghji frá FCK. Bardghji var á listum yfir efnilegustu leikmenn Evrópu fyrir rúmu ári síðan en lenti í erfiðum meiðslum og var lengi frá.

Hann er kominn til baka og á einungis hálft ár eftir af samningi sínum við dönsku meistarana.

Hann var sterklega orðaður við Porto og ensku úrvalsdeildina, en allt bendir til þess að hann fari til spænsku meistaranna.

Sky Sports segir frá því að búið sé að semja við Bardghji sjálfan, einungis eigi eftir að ganga frá kaupverðinu en það verði í kringum tvær milljónir punda.

Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem verður tvítugur í nóvember. Hjá FCK lék hann með Orra Steini Óskarssyni, Hákoni Arnari Haraldssyni og Ísaki Bergmanni Jóhannessyni.
Athugasemdir
banner
banner