Leny Yoro, varnarmaður Man Utd, hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði fyrir ofsaakstur á Porche bifreið sinni en hann keyrði m.a. framhjá heimahúsum og skóla. BBC greinir frá.
Bíllinn mældist á um 115 km hraða í hraðamyndavél í úthverfinu Withington í Manchester í ágúst. Dómsskjöl sýna að franski varnarmaðurinn ók á rúmlega tvöföldum hraða yfir 48 km/klst hámarkshraða á svæðinu.
Lögmenn Yoro báðust afsökunar fyrir hans hönd og héldu því fram að vegurinn væri greiður og að knattspyrnumaðurinn hefði verið að „flýta sér að fara með vin sinn á lestarstöðina“.
Auk akstursbanns var Yoro, sem játaði sök, sektaður um 666 pund og gert að greiða 120 pund í málskostnað og 266 punda fórnarlambsálag í héraðsdómi Crewe á laugardag.
Yoro er tvítugur en hann gekk til liðs við Man Utd frá Lille árið 2024. Hann hefur komið við sögu í 23 leikjum á tímabilinu. Man Utd heimsækir Everton í úrvalsdeildinni í kvöld.
Athugasemdir


