Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 11:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Ferðadagur hjá Íslandi - Borgin vel merkt fyrir komu þeirra
Icelandair
EM KVK 2025
Thun skartaði sínu fegursta í dag.
Thun skartaði sínu fegursta í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stelpurnar í íslenska landsliðinu ferðast í dag yfir til Sviss eftir að hafa varið síðustu dögum í æfingabúðum í Serbíu. Þær lögðu Serbíu að velli í vináttulandsleik í gær, 1-3, en það var síðasti leikur liðsins fyrir Evrópumótið.

Íslenska liðið er núna að fljúga yfir til Sviss og mun síðar í dag koma sér vel fyrir á frábæru hóteli sínu.

KSÍ hefur bókað hótel fyrir íslenska liðið á mjög hentugri staðsetningu í bænum Gunten við Thun-vatn. Þaðan er innan við 20 mínútna akstur á leikvanginn í Thun og rúmur klukkutími til Bern.

Gist verður á Parkhotel Gunten en þaðan er dásamlegt útsýni yfir vatnið og fjöllin í kring. Við hótelið er garður sem vel er látið af.

Íslenska liðið er með hótelið alveg út af fyrir sig og ætti því að fara mjög vel um liðið þarna.

Fréttamaður Fótbolta.net mætti til Thun á undan íslenska liðinu og þegar komið var út af lestarstöðinni þá var alveg augljóst að EM kvenna er framundan. Borgin er vel merkt með borðum frá UEFA og er mikið af auglýsingum.

Fyrsti leikur Íslands er í Thun gegn Finnlandi næsta miðvikudag.
Athugasemdir
banner