Steinþór Már Auðunsson, eða Stubbur eins og hann er oftast kallaður, mun snúa aftur á völlinn fljótlega, en þetta staðfesti Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 5-2 tapið á móti Val í Bestu deildinni í gær.
Markvörðurinn hefur ekkert spilað með KA síðan í maí en hann hafði verið að finna fyrir eymslum í liðþófa og hefur William Tönning staðið á milli stanganna í fjarveru hans.
Stubbur fór í aðgerð á dögunum og gerir Hallgrímur ráð fyrir því að hann verði klár í slaginn á næstunni.
„Hann er bara að ná sér eftir að hafa farið í liðþófaaðgerð og er aðeins byrjaður að æfa. Hann ætti að vera klár fljótlega,“ sagði Hallgrímur við Fótbolti.net.
Tönning hefur fengið á sig tíu mörk í þeim fimm leikjum sem hann hefur spilað með KA á meðan Stubbur hefur fengið á sig fimmtán mörk í átta leikjum.
KA hefur aðeins unnið þrjá deildarleiki á tímabilinu og situr nú í næst neðsta sæti með 12 stig.
Athugasemdir