Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 19:11
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Benfica og Chelsea: Maresca gerir sjö breytingar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Benfica og Chelsea mætast við í spennandi slag í 16-liða úrslitum á HM félagsliða og má sjá byrjunarliðin hér fyrir neðan.

Það er fátt sem kemur á óvart þar sem ýmsar stórstjörnur mæta til leiks í byrjunarliðum kvöldsins. Liam Delap leiðir sóknarlínu Chelsea á meðan Moisés Caicedo, Enzo Fernández og Romeo Lavia mynda gífurlega öfluga miðju.

Pedro Neto og Cole Palmer eru á köntunum og er ekkert sem kemur á óvart í varnarlínunni. Christopher Nkunku, Noni Madueke og Malo Gusto eru meðal varamanna.

Angel Di María er á sínum stað í sóknarlínu Benfica ásamt hinum eftirsótta Andreas Schjelderup og gríska framherjanum Vangelis Pavlidis.

Bruno Lage þjálfari Benfica gerir tvær breytingar á liðinu sem sigraði óvænt gegn FC Bayern í lokaumferð riðlakeppninnar.

Enzo Maresca gerir aftur á móti sjö breytingar frá byrjunarliði Chelsea sem sigraði þægilega gegn Esperance í síðasta leik.

Benfica: Trubin, Aursnes, Silva, Otamendi, Dahl, Florentino, Barreiro, Kokcu, Di Maria, Schjelderup, Pavlidis
Varamenn: Akturkoglu, Bajrami, Belotti, Bruma, Carreras, Gouveia, Luis, Oliveira, Prestianni, Prioste, Rego, Santos, Veloso, Wynder, Ferreira

Chelsea: Sanchez, James, Colwill, Badiashile, Cucurella, Lavia, Caicedo, Fernandez, Palmer, Neto, Delap
Varamenn: Acheampong, Adarabioyo, Santos, Anselmino, Chalobah, Dewsbury-Hall, Essugo, George, Guiu, Gusto, Madueke, Nkunku, Sarr, Penders, Slonina
Athugasemdir
banner