Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 18:09
Ívan Guðjón Baldursson
Elliott og Quansah byrja úrslitaleikinn
Elliott skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Hollandi í undanúrslitum.
Elliott skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Hollandi í undanúrslitum.
Mynd: EPA
England og Þýskaland eigast við í úrslitaleik Evrópumóts U21 árs landsliða í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Það er ekki margt sem kemur á óvart þar sem stjörnum prýtt lið Englendinga reynir að vinna mótið í annað sinn í röð.

Harvey Elliott og Jarell Quansah, leikmenn Liverpool sem gætu verið á förum í sumar, eru á sínum stað í byrjunarliðinu en Elliott var einnig í U21 liðinu sem vann EM 2023.

Auk þeirra má finna leikmenn á borð við Elliot Anderson, James McAtee, Jack Hinshelwood og Tino Livramento í byrjunarliði Englands, ásamt Charlie Cresswell sem var einnig í hópnum sem vann EM 2023.

Varamannabekkur Englendinga er einnig gríðarlega öflugur þar sem má finna leikmenn á borð við Samuel Iling-Junior, Ethan Nwaneri, Archie Gray og Jonathan Rowe.

Þjóðverjar mæta einnig til leiks með sterkt lið þar sem Nick Woltemade, sem virðist vera á leið til FC Bayern í sumar, leiðir sóknarlínuna.

Brajan Gruda, leikmaður Brighton, er einnig í byrjunarliðinu ásamt miðverðinum Tim Oermann sem er nýlega genginn til liðs við Bayer Leverkusen.

Það ríkir mikil spenna fyrir þennan úrslitaleik en Þjóðverjar rúlluðu yfir Frakka í undanúrslitum á meðan Harvey Elliott var hetja Englendinga í 2-1 sigri gegn Hollandi.

England: Beadle, Hinshelwood, Quansah, Cresswell, Livramento, Anderson, McAtee, Scott, Stansfield, Hutchinson, Elliott
Varamenn: Edwards, Egan-Riley, Fellows, Gray, Hackney, Iling-Junior, Morton, Norton-Cuffy, Nwaneri, Rowe, Sharman-Lowe, Simkin

Þýskaland: Atubolu, Collins, Arrey-Mbi, Oermann, Brown, Nebel, Martel, Reitz, Weiper, Gruda, Woltemade
Varamenn: Ernst, Noll, Baum, Jander, Knauff, Rohl, Rosenfelder, Siebert, Thielmann, Tresoldi, Ulrich, Wanner
Athugasemdir
banner
banner