32 ára gamall Paul Pogba getur snúið aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa verið frá keppni í tæplega tvö ár vegna leikbanns fyrir fall á lyfjaprófi.
Pogba hafði átt erfitt uppdráttar áður en hann var dæmdur í leikbann og missti af mörgum leikjum vegna meiðsla, bæði á dvöl sinni hjá Manchester United og svo Juventus.
Nú fær þessi miðjumaður annað tækifæri til að sanna sig aftur í hæsta gæðaflokki eftir að hann var tilkynntur sem nýr leikmaður AS Mónakó, sem leikur í Meistaradeild Evrópu í haust.
Pogba gerði tveggja ára samning við Mónakó og réði ekki við tilfinningarnar við undirskriftina. Hann þakkaði Mónakó fyrir að hafa trú á sér með þessum samningi og grét.
Á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta hefur Pogba meðal annars unnið ítölsku deildina, ítalska bikarinn, Evrópudeildina og HM. Auk þess hefur hann lent í öðru sæti í Meistaradeild Evrópu, FA bikarnum og á EM.
???? pic.twitter.com/TxC84ZsOTN
— AS Monaco ???????? (@AS_Monaco) June 28, 2025
Athugasemdir