Enzo Maresca þjálfari Chelsea er mjög spenntur fyrir þróun Enzo Fernández hjá félaginu.
Þessi argentínski miðjumaður kostaði félagið rúmlega 105 milljónir punda fyrir tveimur árum síðan og tók hann smá tíma að fóta sig í ensku úrvalsdeildinni. Hann átti þó frábæran seinni hluta tímabils með Chelsea á nýliðinni leiktíð og er orðinn mikilvægur hlekkur á miðjunni hjá Maresca.
„Ég er mjög ánægður með Enzo, hann hefur verið frábær fyrir okkur. Ég er fyrst og fremst mjög ánægður útaf því að hann er góður strákur. Hann er kurteis og vingjarnlegur. Þar að auki hefur hann æft mjög vel og verið að bæta sig stöðugt. Hann þurfti smá tíma til að læra inn á leikstílinn okkar," sagði Maresca á fréttamannafundi fyrir leik Chelsea gegn Benfica í 16-liða úrslitum HM félagsliða sem er í gangi þessa stundina. Fernández mætir þar sínum fyrrum liðsfélögum.
„Hann hefur verið duglegur að hjálpa til við markaskorunina. Ég hef oft sagt að ég vil frekar vera með marga sóknarleikmenn sem skora 10-12 mörk hver heldur en einn framherja sem skorar 40 mörk.
„Framlag Enzo var frábært á síðustu leiktíð og ég er viss um að hann verði enn betri á næstu leiktíð."
Athugasemdir