Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 18:49
Ívan Guðjón Baldursson
HM: Laglegt einstaklingsframtak skaut Palmeiras áfram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Palmeiras 1 - 0 Botafogo
1-0 Paulinho ('100)
Rautt spjald: Gustavo Gomez, Palmeiras ('116)

Palmeiras og Botafogo áttust við í brasilískum slag í 16-liða úrslitum HM félagsliða í dag.

Palmeiras var sterkari aðilinn á vellinum og skapaði sér góð færi en tókst ekki að skora í venjulegum leiktíma.

Botafogo lá aftarlega og varðist mikið. Það var ekki mikið um færi í leiknum og þurfti að framlengja viðureignina þar sem staðan var enn markalaus eftir 90 mínútur.

Framlengingin var jafnari þar sem Botafogo virtist vera með yfirhöndina, en þá leit eina mark leiksins dagsins ljós.

Paulinho, sem kom inn af bekknum í síðari hálfleik, skoraði eftir laglegt einstaklingsframtak á 100. mínútu. Hann fékk boltann úti á hægri kanti og fór framhjá tveimur varnarmönnum áður en hann skoraði með hnitmiðuðu skoti í hornið.

Skelfilegur varnarleikur og sofandaháttur hjá Botafogo til að fá þetta mark á sig, en þá tók liðið að sækja í leit að jöfnunarmarki en þær tilraunir báru ekki árangur.

Varnarmaðurinn Gustavo Gómez var rekinn af velli með seinna gula spjaldið sitt á 116. mínútu svo Palmeiras þurfti að klára framlenginguna einum leikmanni færri. Það kom ekki að sök þar sem Botafogo náði ekki að skapa sér mikið svo lokatölur urðu 1-0.

Palmeiras fer því áfram í 8-liða úrslitin og mætir annað hvort Benfica eða Chelsea.
Athugasemdir