Munoz, Gallagher og Adams orðaðir við Man Utd - Man City vill fá Marc Guehi
Jóladagatalið: Hugleysingjar dauðans
Jóladagatalið: Eiður Smári gekk út úr viðtali
Óþægileg óvissa en gerðist svo hratt - „Þarf að byrja á að virða þetta skref"
Jóladagatalið: Dansaði að hætti Boris Lumbana
Jóladagatalið: Fituprósenta og Framsókn
Jóladagatalið: Vidic er fokking leiðinlegur
Viktor Örn: Sjóaðir í að standa upp við mótlæti
Andri Rafn: Ákveðinn léttir og mikil gleði að ná fyrsta sigrinum
Jóladagatalið: Baldur Sig og lága kvöldsólin
Höskuldur: Við Íslendingar ættum að fara kannast við þetta lið
Aron Snær: Svo hringir bara Kári Árna
Ólafur Ingi: Þá held ég að sigurinn skili sér
Jóladagatalið: Vona að þeir hafi verið á baki en ekki með hann í lúkunum
Jóladagatalið: Hvernig er að ganga í Feneyjum?
Jóladagatalið: Misskildi spurningu fréttamanns - „Setti hársprey og svona“
Jóladagatalið: Hægðir og lægðir
Jóladagatalið: Lárus Orri lét stjórnarmenn heyra það - „Vilja eignast vini upp á KA-svæði“
Jóladagatalið: Langbest að fá heyrnarlausa menn til að dæma leikinn
Jóladagatalið: Cillessen rauk úr viðtali eftir tap á Laugardalsvelli
Jóladagatalið: Gylfi lét boltum rigna yfir Jóa Berg
   lau 28. júní 2025 17:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bróðir Ragnars Braga sló heimsmet í dag - „Gæti ekki verið stoltari"
Lengjudeildin
Lék sem miðvörður í dag.
Lék sem miðvörður í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það skiptir gríðarlega miklu máli að vera með svona leikmann í standi.'
'Það skiptir gríðarlega miklu máli að vera með svona leikmann í standi.'
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
'Ég gæti ekki verið stoltari af bróður mínum sem er gjörsamlega að brillera í þessum bransa'
'Ég gæti ekki verið stoltari af bróður mínum sem er gjörsamlega að brillera í þessum bransa'
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
„Þungu fargi af manni létt, held að það sé svona besta lýsingarorðið yfir þetta. Við erum ekki búnir að vinna sjö leiki í röð og þetta verður andlega þungt. Þetta var ekki besti leikurinn okkar í dag, erum búnir að spila flestalla leikur betur en í dag. Þetta snerist bara um að vinna, koma okkur aftur á beinu brautina," sagði fyrirliði Fylkis, Ragnar Bragi Sveinsson, eftir sigur á Völsungi í Lengjudeildinni í dag.

Ragnar Bragi leysti stöðu miðvarðar í fjarveru Orra Sveins Segatta í hjarta varnarinnar.

Lestu um leikinn: Völsungur 1 -  4 Fylkir

„Það er mjög auðvelt að spila hafsent, búinn að segja þetta við Geira (Ásgeir Eyþórsson) og Orra í mörg ár, þú hreyfir þig varla og ert bara að dunda þér eitthvað með boltann. Það var bara fínt, fínt að leysa það þar sem Orri var meiddur."

Emil Ásmundsson kom að fyrstu tveimur mörkum Fylkis. Hann er kominn af stað eftir hnémeiðsli. „Topp-toppleikmaður hann Emil, því miður misstum við hann út rétt fyrir mót, hann var kominn í svaðalega gott stand í vetur. Það skiptir gríðarlega miklu máli að vera með svona leikmann í standi."

Ætluðuð þið að vinna eða þurftuð þið að vinna?

„Sama hvort það sé ætluðum eða þyrftum, mig langaði bara að vinna þennan leik. Ég fæ meira bögg af því ég bý í Árbænum og hitti Árbæinga á hverjum degi í Bónus og fleira, það er búið að vera aðeins þungt yfir mannskapnum. Ég ætlaði að vinna þennan leik og mér fannst ég aðeins þurfa það líka."

Bróðir Ragnars Braga, Konráð Valur Sveinsson, setti í dag heimsmet í 250 metra skeiði. Fyrirliðinn var spurður út í afrek bróður síns.

„Ég var bara að sjá þetta þegar ég kom inn í klefa, maður er ótrúlega stoltur af honum. Hann er á sér sviði í þessari grein innan hestamennskunnar. Ég gæti ekki verið stoltari af bróður mínum sem er gjörsamlega að brillera í þessum bransa. Fáránlega gaman að sjá að hann sló þetta heimsmet í dag, geri aðrir betur."

Konráð og hesturinn hans voru 21,06 sekúndur að fara 250 metrana.

„Ég á tíma í þessu, hef keppt í þessu, mig minnir að ég hafi farið 23,11, munar um tveimur sekúndum, hann er aðeins betri en restin."

„Ótrúlegt að sjá hann ná þessum árangri, það hefur verið tröppugangur hjá honum. Hann á annað heimsmet í annarri grein (150m skeið). Þessi hestur sem hann er með er ótrúlegur. Ég veit ekki hversu mikið af fótboltamönnum skilja nákvæmlega um hvað hestamennskan snýst, en þetta er mjög einfalt, þú ert bara að keppa við tímann, spretthlaup á hesti. Hann er ótrúlegur, algjörlega sér á báti og á þetta fyllilega skilið,"
sagði Ragnar Bragi.

Smelltu hér til að lesa meira um afrek Konráðs
Athugasemdir
banner
banner