Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 16:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Ofurtölvan með Íslandi í liði
Icelandair
EM KVK 2025
Alexandra Jóhannsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir.
Alexandra Jóhannsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hin margumtalaða ofurtölva telur að Ísland muni komast upp úr riðlinum á Evrópumótinu í Sviss.

Þetta kemur fram í grein Opta Analyst fyrir mótið.

Ofurtölva Opta spáir í spilin fyrir mótið og samkvæmt útreikningum hennar eru tæplega 54 prósent líkur á því að Ísland fari áfram úr riðlinum.

Opta lék riðilinn eftir 10 þúsund sinnum og í 53,7 prósent tilfella komst Ísland áfram. Þar af vann Ísland riðilinn í 26,5 prósent tilvika.

„Þær þurfa hins vegar að bæta frekar slakan árangur sinn á EM þar sem þær hafa bara unnið einn af 13 leikjum sínum á lokamótinu," segir í greininni.

Það er talið líklegast að Noregur vinni riðilinn en samkvæmt ofurtölvunni mun riðillinn enda svona:

1. Noregur (63,6% líkur á að fara áfram)
2. Ísland (53,7% líkur á að fara áfram)
3. Sviss (45,8% líkur á að fara áfram)
4. Finnland (36,9% líkur á að fara áfram)

Fyrirfram er þetta líklega jafnasti riðill mótsins en Ísland hefur leik á EM á miðvikudaginn er stelpurnar okkar mæta Finnlandi.
Athugasemdir