Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 12:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Sungu fyrir Glódísi inn í klefa og færðu henni köku eftir leik
Icelandair
EM KVK 2025
Glódís Perla varð þrítug í gær.
Glódís Perla varð þrítug í gær.
Mynd: Instagram - Skjáskot
Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir fagnaði þrítugsafmæli sínu í gær. Hún fékk góða gjöf því Ísland vann 1-3 sigur á Serbíu í síðasta æfingaleik sínum fyrir EM um kvöldið.

Það var mikil stemning eftir leikinn en um leið og Glódís var búin í viðtali sínu við Fótbolta.net þá var sungið fyrir hana inn í klefa.

„Ræða, ræða, ræða," kölluðu liðsfélagar hennar svo til hennar þegar söngurinn var búinn.

Glódís hélt þá stutta tölu og hrósaði liðinu mikið fyrir sigurinn. „Þið eruð geggjaðar og það eru svo mikil forréttindi að fá að vera partur af þessum hóp," sagði Glódís og út brutust mikil fagnaðarlæti.

Eftir leikinn birti svo Glódís mynd á Instagram þar sem má sjá að hún fékk köku og blys frá liðsfélögunum. „Ég átti besta daginn með liðinu mínu og þær gerðu hann mjög séstakan fyrir mig," skrifaði landsiðsfyrirliðinn.

Landsliðið er núna að ferðast yfir til Sviss þar sem EM fer fram. Fyrsti leikur er á miðvikudaginn gegn Finnlandi.



Athugasemdir
banner