Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur útskýrt ástæðuna fyrir því að Jack Grealish sé ekki með liðinu á HM félagsliða.
Grealish var ekki valinn í leikmannahópinn fyrir keppnina og kom það svosem ekki flatt upp á áhugamenn um enskan fótbolta enda höfðu enskir miðlar greint frá því að hann væri ekki í myndinni hjá Guardiola.
Englendingurinn átti stóran þátt í að hjálpa Man City að vinna þrennuna tímabilið 2022-2023, en ekki verið að spila jafn stórt hlutverk síðan þá.
„Ég er eina ástæðan fyrir því að hann fær ekki mínútur, ekki af því hann gerði eitthvað rangt eða eitthvað svoleiðis. Hann er topp leikmaður en leikmenn verða að vera í samkeppni við hvor annan og á síðasta tímabili var Doku magnaður í mörgum leikjum og Savinho tók miklum framförum.“
„Ég vil aðeins það besta fyrir Jack, kærustu, börn og fjölskyldu hans. Ég veit ekki hvað mun gerast núna en ég hef aldrei verið í efa um gæði hans. Þau hafa alltaf verið til staðar og hefði það verið ómögulegt fyrir okkur að vinna þrennuna án hans,“ sagði Guardiola.
Grealish, sem er 29 ára gamall, á tvö ár eftir af samningnum, en mun væntanlega fær sig um set í sumar. Aston Villa, uppeldisfélag Grealish, er möguleiki, en hann hefur einnig verið orðaður við Bayer Leverkusen, Everton, Napoli og Newcastle United.
Athugasemdir