Mosfellingurinn Jason Daði Svanþórsson mun missa af byrjun tímabilsins með Grimsby Town eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné. BBC segir frá.
Jason kom nokkuð vel undan fyrsta tímabili sínu hjá Grimsby. Hann var einn af atkvæðamestu leikmönnum liðsins í sóknarleiknum og virtist finna sig ágætlega í ensku D-deildinni.
BBC segir aftur á móti að Grimsby verði án hans í byrjun komandi leiktíðar, en hann fór undir hnífinn á dögunum vegna meiðsla á hné og mun líklega missa af tíu leikjum en áætluð endurkoma er í lok september.
Einnig kemur fram að aðgerðin hafi verið fyrirfram ákveðin og beðið með að framkvæma hana þangað til eftir nýafstaðið tímabil.
Jason kom að átta mörkum í 43 leikjum sínum með Grimsby er liðið rétt missti af umspilssæti.
Athugasemdir