Ítalíumeistarar Napoli eru í viðræðum við Bologna um kaup á tveimur lykilmönnum liðsins.
Napoli er þegar búið að ná munnlegu samkomulagi við kantmanninn Dan Ndoye og miðvörðinn Sam Beukema sem eiga báðir tvö ár eftir af samningi sínum hjá Bologna. Félagið hefur þó möguleika á að framlengja samning Ndoye um eitt ár með því að virkja samningsákvæði.
Ndoye er 24 ára Svisslendingur og var meðal bestu manna Bologna á síðustu leiktíð, þar sem hann kom að 15 mörkum í 41 leik. Hann hjálpaði liðinu að sigra ítalska bikarinn þegar hann skoraði eina mark leiksins í úrslitaleiknum gegn AC Milan.
Beukema er 26 ára Hollendingur og var fastamaður í hjarta varnarinnar á síðustu leiktíð, þar sem hann lék 47 leiki fyrir félagið.
Napoli er þá að lána miðvörðinn Rafa Marín til Villarreal í spænska boltanum. Villarreal greiðir eina milljón evra fyrir lánssamninginn og getur keypt leikmanninn fyrir 15 milljónir til viðbótar.
Ákveði Villarreal að kaupa Marín mun Napoli einnig halda 10% af endursöluvirði leikmannsins.
04.06.2025 06:00
Meistararnir vilja tvo frá Bologna
Athugasemdir