Það fóru þrír leikir fram í 5. deild karla í gær og tveir leikir í utandeildarkeppni KSÍ.
Smári og Uppsveitir sigruðu leiki sína í A-riðli í gær þar sem sigur Uppsveita kom gríðarlega á óvart.
Uppsveitir tóku á móti toppliði Álafoss sem mætti á Laugarvatn með fullt hús stiga og var staðan 2-2 eftir jafnan fyrri hálfleik. Leikurinn var áfram jafn og var staðan orðin 3-3 þegar Alfonso David Porras Nino lét til skarar skríða.
Alfonso skoraði þrennu á lokakafla leiksins til að tryggja Uppsveitum afar óvæntan 6-3 sigur. Álafoss er með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar, með 18 stig eftir 7 umferðir, á meðan Uppsveitir eru um miðja deild með 9 stig.
Smári er í þriðja sæti með 11 stig eftir sigur gegn Herði á Ísafirði.
B-riðillinn er talsvert jafnari en þar sigraði Spyrnir gegn toppliði RB eftir ótrúlega spennandi viðureign. RB leiddi með einu marki en Spyrnir snéri stöðunni við í síðari hálfleik eftir að leikmaður RB hafði verið rekinn af velli. Lokatölur 4-3 fyrir Spyrni.
Spyrni tókst að jafna RB og KFR á toppi riðilsins með þessum sigri, en KFR á þó leik til góða. Liðin þrjú eru jöfn með 13 stig.
Að lokum sigruðu Afríka og KB leiki sína í utandeildinni, en til gamans má geta að Afríka kláraði sinn leik einum leikmanni færri á meðan KB var tveimur mönnum færri stærsta hluta seinni hálfleiksins.
Afríka deilir toppsæti utandeildarinnar með Hömrunum, með 12 stig eftir 5 umferðir. KB er með 6 stig eftir 3 umferðir.
Hörður Í. 1 - 2 Smári
0-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('12 , Mark úr víti)
1-1 Sigurður Arnar Hannesson ('16 )
1-2 Kristján Gunnarsson ('43 )
Uppsveitir 6 - 3 Álafoss
1-0 Kristinn Sölvi Sigurgeirsson ('31 )
1-1 Davíð Ívarsson ('33 )
1-2 Patrekur Orri Guðjónsson ('44 )
2-2 Kristinn Sölvi Sigurgeirsson ('45 )
3-2 Pétur Geir Ómarsson ('49 , Mark úr víti)
3-3 Andri Hrafn Sigurðsson ('69 )
4-3 Alfonso David Porras Nino ('82 )
5-3 Alfonso David Porras Nino ('89 )
6-3 Alfonso David Porras Nino ('91)
Spyrnir 4 - 3 RB
1-0 Eyþór Atli Árnason ('8 )
1-1 Gerald Breki Einarsson ('24 )
1-2 Jakub Cukrowski ('32 )
2-2 Arnór Snær Magnússon ('42 )
2-3 Jakub Cukrowski ('47 )
3-3 Eyþór Atli Árnason ('58 )
4-3 Hilmir Hólm Gissurarson ('83 )
Rautt spjald: Sinan Soyturk, RB ('53)
Utandeild
Fálkar 1 - 2 Afríka
0-1 Cristian Andres Catano ('9 )
0-2 Cristian Andres Catano ('31 )
1-2 Steinar Gauti Örnuson Dagsson ('49 )
Rautt spjald: Nafe Brahim Brahim, Afríka ('90)
Neisti D. 1 - 3 KB
0-1 Chalee Mohtua ('16 )
1-1 Haraldur Sigurjónsson ('23 )
1-2 Aron Jarl Davíðsson ('44 , Mark úr víti)
1-3 Þórarinn Þórarinsson ('65 )
Rautt spjald: Aakash Gurung , KB ('45)
Rautt spjald: Kristófer Bæring Sigurðarson , KB ('70)
5. deild karla - A-riðill
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Álafoss | 7 | 6 | 0 | 1 | 26 - 15 | +11 | 18 |
2. Skallagrímur | 6 | 4 | 1 | 1 | 12 - 8 | +4 | 13 |
3. Smári | 7 | 3 | 2 | 2 | 29 - 13 | +16 | 11 |
4. KM | 6 | 3 | 1 | 2 | 12 - 8 | +4 | 10 |
5. Uppsveitir | 7 | 3 | 0 | 4 | 10 - 17 | -7 | 9 |
6. Léttir | 6 | 2 | 2 | 2 | 21 - 12 | +9 | 8 |
7. Hörður Í. | 7 | 1 | 2 | 4 | 15 - 13 | +2 | 5 |
8. Reynir H | 6 | 0 | 0 | 6 | 6 - 45 | -39 | 0 |
5. deild karla - B-riðill
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. RB | 7 | 4 | 2 | 1 | 16 - 10 | +6 | 14 |
2. KFR | 6 | 4 | 1 | 1 | 15 - 8 | +7 | 13 |
3. Spyrnir | 6 | 3 | 2 | 1 | 22 - 12 | +10 | 11 |
4. BF 108 | 5 | 2 | 2 | 1 | 11 - 7 | +4 | 8 |
5. SR | 6 | 2 | 2 | 2 | 19 - 20 | -1 | 8 |
6. Þorlákur | 6 | 2 | 0 | 4 | 10 - 18 | -8 | 6 |
7. Úlfarnir | 6 | 1 | 1 | 4 | 12 - 23 | -11 | 4 |
8. Stokkseyri | 6 | 1 | 0 | 5 | 10 - 17 | -7 | 3 |
Utandeild
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|
Athugasemdir