Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 14:31
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum liðsfélagi Rúnars gæti tekið markvarðarstöðuna hjá FCK
Mynd: Roma
Danski miðillinn Tipsbladet segir að Rúnar Alex Rúnarsson sé að fá mikla samkeppni um markvarðarstöðuna hjá FCK, en félagið er sagt hafa gert ástralska markverðinum Matt Ryan gott samningstilboð.

Rúnar Alex hefur ekki verið í myndinni hjá FCK síðan í byrjun síðasta tímabils.

Markvörðurinn fékk að vita það að hann væri ekki í markvarðarteyminu í desember en var samt á bekknum í nokkrum leikjum eftir áramót.

Hann var ekki í hóp í síðustu fjórum leikjum liðsins og útlit fyrir að hann verði ekki mikið lengur þar. En ef hann verður lengur þá verður samkeppnin mikil.

Tipsbladet segir að FCK hafi boðið Matt Ryan, fyrrum liðsfélaga Rúnars hjá Arsenal, samning.

Diant Ramaj stóð í marki FCK á síðasta tímabili, en hann var á láni frá Borussia Dortmund. Hann er farinn aftur til þýska félagsins og FCK því aftur komið í leit að aðalmarkverði.

Ryan og Rúnar spiluðu saman hjá Arsenal árið 2021. Það árið spilaði Rúnar eina deildarleik sinn með Arsenal í tapi gegn Wolves í febrúar en nokkrum dögum áður hafði Ryan gengið í raðir félagsins á láni frá Brighton.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, kaus að hafa Ryan á bekknum í stað Rúnars eftir það og spilaði Ryan þrjá deildarleiki á tíma sínum þar.

Ástralinn hefur áður verið á mála hjá FCK og spilaði þar 11 leiki árið 2022 áður en hann hélt til AZ Alkmaar. Síðustu tvö tímabil hefur hann spilað með Roma og Lens.
Athugasemdir
banner