Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 13:15
Brynjar Ingi Erluson
Milan staðfestir brottför Walker
Mynd: EPA
Enski bakvörðurinn Kyle Walker er farinn frá AC Milan og kominn aftur til Manchester City en Milan staðfestir þetta á heimasíðu sinni í dag.

Walker kom til Milan á láni frá Man CIty í byrjun árs með möguleika á að gera skiptin varanleg eftir tímabilið.

Englendingurinn spilaði 14 leiki í deild- og bikar með Milan, en tókst ekki að heilla á þessum tíma og ákvað félagið að senda hann aftur til Man City.

Það staðfesti brottför hans í dag og er hann því mættur aftur til Man City, en hann mun ekki staldra lengi við þar. Hann er ekki lengur í myndinni hjá Pep Guardiola eftir skelfilega frammistöðu fyrri hluta síðasta tímabils.

Walker hefur verið orðaður við Everton og Fenerbahce síðustu vikur og einnig hafa verið sögur um að hann gæti snúið aftur til Sheffield United, þar sem hann hóf feril sinn.


Athugasemdir
banner