Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
banner
   fös 30. maí 2025 14:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óskar KR-ingum alls hins besta í sumar - „Eru bara að fara gefa í"
Fagnaði marki sínu vel í gær.
Fagnaði marki sínu vel í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Þór Hauksson átti dapurt tímabil með KR í fyrra og gekk í vetur í raðir Stjörnunnar. Hann átti stórleik í gær þegar Stjarnan vann 4-2 sigur á KR.

Eftir rúmar tíu mínútur var Alex búinn að leggja upp tvö mörk og skora eitt, fallegt, sjálfur.

Hann ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.

Var extra mótívering að spila gegn KR eftir frekar erfitt tímabil þar í fyrra?

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  2 KR

„Nei, alls ekki. Það var bara skemmtilegt, ég þekki þessa stráka, frábærir strákar og ég óska þeim bara alls hins besta í sumar. Það er búið að vera skemmtilegt að fylgjast með þeim í sumar og þeir eru bara að fara gefa í," sagði Alex eftir leikinn.

Í viðtali í vetur, sem nálgast má he? að neðan, talaði Alex um að tíminn hjá KR hafi verið lærdómsríkur.
Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Athugasemdir
banner