Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 16:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrándheimi
Byrjunarlið Íslands - Fjórir miðverðir í öftustu línu
Icelandair
EM KVK 2025
Natasha, hér til hægri, byrjar.
Natasha, hér til hægri, byrjar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María er í byrjunarliði Íslands.
Sandra María er í byrjunarliði Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís snýr aftur eftir meiðsli.
Glódís snýr aftur eftir meiðsli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að opinbera byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Noregi í Þjóðadeild kvenna í kvöld. Leikið er á Lerkendal leikvanginum í Þrándheimi.

Glódís Perla Viggósdóttir snýr aftur í byrjunarlið Íslands og er auðvitað með fyrirliðabandið. Hún var meidd í síðasta landsleikjaglugga.

Lestu um leikinn: Noregur 1 -  1 Ísland

Það er athyglisvert að það eru í raun fjórir miðverðir í vörninni. Ingibjörg og Glódís eru í hjartanu og svo eru Guðrún Arnardóttir og Natasha Anasi í bakvörðunum.

Sandra María Jessen fær þá tækifæri í byrjunarliðinu en hún hefur leikið frábærlega með Þór/KA að undanförnu og skorað sex mörk í síðustu þremur leikjum.



Byrjunarlið Íslands:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir (f)
7. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
11. Natasha Anasi
14. Hlín Eiríksdóttir
16. Hildur Antonsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
Athugasemdir
banner