Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Hefðum ekkert getað byrjað mótið með mikið fleiri hafsenta"
Óskar Hrafn.
Óskar Hrafn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birgir Steinn hefur verið meiddur og lítið með KR á tímabilinu.
Birgir Steinn hefur verið meiddur og lítið með KR á tímabilinu.
Mynd: Mummi Lú
Finnur Tómas var í banni í gær.
Finnur Tómas var í banni í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gyrðir var í hægri bakverðinum í gær.
Gyrðir var í hægri bakverðinum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er með tíu stig eftir níu umferðir í Bestu deildinni, en það eru færri stig en liðið var með á sama tíma í mótinu í fyrra. Þess má geta að Gregg Ryder var látinn fara eftir ellefu umferðir í fyrra, en þá var liðið með tólf stig. En það er ljóst að Óskar Hrafn Þorvaldsson er ekki Gregg Ryder, Óskar er með skýra hugmyndafræði og hefur lagt mun meira upp úr því að skora á andstæðingana heldur en að verja eigið mark. KR liðið spilar mjög skemmtilegan fótbolta en hefur lekið inn of mörgum auðveldum mörkum.

Eftir leikinn í gær ræddi Kári Snorrason við Óskar. Hann spurði Óskar út í færanýtinguna en KR meira en 70% með boltann og komst oft í mjög góðar stöður.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  2 KR

„Markmiðið okkar er ekki að fá á okkur 3-4 mörk í leik, þó að við stöndum hátt og viljum vera agressífir. Við viljum verða betri og falla á réttum tíma og verja teiginn okkar betur, en það eru bara svo mörg jákvæð teikn á lofti þegar við erum með boltann að það væri galið fyrir mig, á þessum tímapunkti; rétt nýbyrjaðir í þessu ferli, að fara einblína á það að við fáum á okkur of mikið af mörkum. Við höfum haldið boltanum og skapað okkur helling í öllum leikjunum, höfum pressað vel og gefið lítinn tíma á boltanum. Svo hafa menn auðvitað fengið mikið fyrir lítið, lið hafa þurft fáar sendingar til að skora mörk á móti okkur. Það er eitthvað sem við þurfum að breyta og ætlum að breyta. Hluti af því er að það væri notalegt að geta spilað með sömu varnarlínuna í tvo leiki í röð. Ég held að þá myndi strax sjást munur. Auðvitað verða menn að verjast betur," sagði Óskar.

Hann var svo spurður hvort það hafi verið mistök að koma inn í mótið með einungis tvo hafsenta. Kári átti þar við þá Júlíus Mar Júlíusson og Finn Tómas Pálmason.

„Við byrjuðum mótið ekkert með tvo hafsenta, við erum með fjóra, það gleyma allir Bigga (Birgi Steini Styrmissyni) sem er U21 landsliðsmaður, hann er líka meiddur. Við vorum raunverulega með fjóra hafsenta, og svo er Hjalti fimmti. Núna eru Júlli og Biggi meiddir og Finnur var í banni í dag, kemur inn aftur á sunnudaginn. Ég held að við hefðum ekkert getað byrjað mótið með mikið fleiri hafsenta, en það er auðvitað bagalegt þegar tveir af þeim meiðast á sama tíma og einn er í banni, þá verður það flókið. Og kannski sérstaklega fyrir lið eins og okkar sem er háð því að vera í takti og ná stöðugleika. Það að vera með stöðugleika í öftustu línu er gríðarlega mikilvægt og það er eitthvað sem við höfum ekki náð, en sjáum hvað gerist þegar við náum 2-3 leikjum með sama lið," sagði Óskar.

Óskar talar um fjóra miðverði, miðað við spilaðar mínútur aftast hlýtur Gyrðir Hrafn Guðbrandsson að vera einn af þeim en það vakti athygli að hann var ekki í hjarta varnarinnar í gær, heldur í hægri bakverði. Þeir Hjalti Sigurðsson og Ástbjörn Þórðarson voru í hafsentunum.

Um stigasöfnunina hafði Óskar þetta að segja:

„Ef þú lítur þröngt á stigasöfnunina þá er hún ekki nógu góð. Ef þú lítur á hvar KR-liðið var í byrjun tímabils, hvernig liðið hefur þróast. Þá held ég að við séum á fínum stað til að verða betri. Við erum búnir að skilgreina hvernig lið við ætlum að verða og erum ekkert að kvika frá þeirri hugmyndafræði. Það er mín klettfasta trú, hef séð það mikið jákvætt af þessu liði, að við séum búnir að byggja fínan grunn fyrir afganginn af tímabilinu. Þú færð mig ekki til að hafa áhyggjur í maí, það verður einhver annar að bera þær áhyggjur,“ sagði Óskar.

Rætt var um KR og leikinn gegn Stjörnunni eftir 44 mínútur af Innkastinu sem nálgast má hér að neðan. Þar var m.a. rætt um miðverði KR og varnarleik liðsins.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Athugasemdir