Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 31. janúar 2025 08:46
Elvar Geir Magnússon
Birkir Már æfir með sænsku liði
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson á erfitt með að klæða sig úr fótboltaskónum og greint er frá því á sænskri síðu á samfélagsmiðlinum X að hann sé við æfinga hjá D-deildarliðinu Nacka í Stokkhólmi.

Birkir er fertugur og lék sinn síðasta leik með Val í október í fyrra. Hann flutti þá til Svíþjóðar en þangað hafði fjölskylda hans flutt áður.

„Þetta var síðasti leikurinn minn hér allavega, ég tek mér frí fram yfir áramót og ef einhver í Svíþjóð vill hafa mig í liðinu sínu, í einhverri deild, þá hugsa ég að ég muni nú alveg sprikla, ef það passar með vinnu og fjölskyldu. Núna verður fjölskyldan í fyrsta sæti, 8-16 vinnan í öðru sæti og fótboltinn í þriðja sæti ef ég spila," sagði Birkir við Fótbolta.net eftir sinn síðasta leik með Val.

Birkir virðist því ekki hafa lagt skóna á hilluna en á ferli sínum lék hann með sænska liðinu Hammarby 2015-2017. Hans hápunktar komu með íslenska landsliðinu þar sem hann lék lykilhlutverk á HM og EM og lék alls 103 landsleiki.


Slapp
Athugasemdir
banner