Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   mið 01. apríl 2026 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Finnst að Tuchel eigi að sýna Maguire meiri virðingu
Harry Maguire.
Harry Maguire.
Mynd: EPA
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, virðist ekki vera mikill aðdáandi Harry Maguire.

Maguire hefur spilað frábærlega með Manchester United að undanförnu og var valinn í síðasta landsliðshóp.

Tuchel segir hins vegar að Maguire sé fimmti kostur í hjarta varnarinnar og að Trevoh Chalobah, miðvörður Chelsea, sé meðal annars á undan honum.

Rio Ferdinand, fyrrum varnarmaður Man Utd og enska landsliðsins, segir Maguire eiga skilið meiri virðingu frá landsliðsþjálfaranum.

„Ég held að Maguire taki þessu sem móðgun að einhverju leyti," sagði Ferdinand en Maguire hefur spilað stórt hlutverk á síðustu stórmótum hjá Englandi og staðið sig mjög vel.
Slapp
banner