Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   mið 01. apríl 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjög skotinn í Pedri
Pedri.
Pedri.
Mynd: EPA
Santi Cazorla, fyrrum landsliðsmaður Spánar, segist vera mjög skotinn í Pedri sem fótboltamanni. Hann tekur fram yfir liðsfélaga hans, Lamine Yamal.

Cazorla er orðinn 41 árs en er enn að spila. Hann leikur í dag með Real Oviedo á Spáni og hefur þar mætt Pedri.

Eftir leik Barcelona og Oviedo fyrr á tímabilinu birti Cazorla færslu á samfélagsmiðlum sem var beint að miðjumanninum. „Geturðu gefið mér treyjuna þína snillingur?" skrifaði Cazorla sem er mikill aðdáandi Pedri.

„Hann er nú þegar einn sá besti í heimi," sagði Cazorla um Pedri.

„Ég hugsa þannig að því eðlilegri sem náunginn er, því mun betri leikmaður er hann. Ég er mjög skotinn í honum og þess vegna bað ég um treyjuna hans."
Slapp
banner