Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 18:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fær Leiknir annan á láni frá ÍA?
Lengjudeildin
Birnir Breki Burknason.
Birnir Breki Burknason.
Mynd: ÍA
Leiknir fékk í gær varnarmanninn Arnór Val Ágústsson á láni frá ÍA fyrir komandi keppnistímabil.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Leiknir að reyna að fá annan leikmann frá ÍA á láni, Birni Breka Burknason.

Birnir Breki er skapandi kantmaður sem fæddur er árið 2006. Hann gekk í raðir ÍA frá HK í fyrra.

Birnir Breki á að baki þrjá leiki fyrir U19 ára landsliðið, en hann fór á reynslu til Hammarby í fyrra og Víkingur sýndi honum áhuga. Hann spilaði fjóra leiki með ÍA í Bestu deildinni í fyrra og á einnig leiki að baki með HK í efstu deild.

Leiknir leikur í Lengjudeildinni en það verður áhugavert að sjá hvort þeim takist að landa Birni.
Slapp
banner